Okkar styrkur felst í þinni aðild

SVEIT eru einu félagasamtökin sem berjast eingöngu fyrir hagsmunum fyrirtækja á veitingamarkaði og er því eitt af aðal markmiðum samtakanna að fá sæti við samningaborðið þegar ákvarðanir um lagalegt starfsumhverfi eru teknar hjá yfirvöldum og stéttarfélögum. 

Með málefnalegri umræðu og fagmennsku stefnir SVEIT á að halda félagsmönnum vel upplýstum um málefni veitingageirans og berjast fyrir hagsmunum af sanngirni og hörku.   

Frjáls framlög leggist inn á eftirfarandi bankareikning:

Kennitala:420721-0480
Banki:537
Höfuðbók:26
Reikningsnúmer:7187

Allt kapp er lagt í að stjórn SVEIT sé og verði samsett af mismunandi rekstraraðilum af öllum stærðum og gerðum í þeim tilgangi að gæta sanngirni í umfjöllun og ákvarðanatöku. Stjórnin er því fjölbreytt og bæði kyn- og rekstrarblönduð. Allir rekstraraðilar á veitingamarkaði hafa hagsmuna að gæta þegar lög og reglur rekstrarumhverfis eru ákveðin. Samtökin eru því fyrir öll fyrirtæki með veitingaleyfi, stór, meðalstór og smá.

Komdu og gakktu liðs við okkur!