
Málsvari þinn
SVEIT, samtök fyrirtækja á veitingamarkaði er sameiginlegur málsvari fyrirtækja á veitingamarkaði.
Tilgangur samtakanna er að standa vörð um hagsmuni félagsmanna sinna gagnvart stjórnvöldum, stuðla að fagmennsku innan veitingageirans og vera upplýsandi um málefni greinarinnar.
Þá þjónusta samtökin aðildarfyrirtæki á sviði kjaramála og kjósa um kjarasamninga fyrir greinina í þeim tilgangi að skapa og viðhalda samkeppnishæfum rekstrargrundvelli í greininni.
Stjórn SVEIT
SVEIT eru einu félagasamtökin sem berjast eingöngu fyrir hagsmunum fyrirtækja á veitingamarkaði og er því eitt af aðal markmiðum samtakanna að fá sæti við samningaborðið þegar ákvarðanir um lagalegt starfsumhverfi eru teknar hjá yfirvöldum og stéttarfélögum.

Framkvæmdastjóri
Einar Bárðarson
Framkvæmdastjóri SVEIT
Einar tók við starfi framkvæmdastjóra SVEIT í júní 2025. Einar er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og býr yfir víðtækri reynslu af stjórnun og stefnumótun.
Stjórn SVEIT
Formaður
María Hjaltadóttir, – Finnsson
Varamaður í stjórn
Björn Árnasson, – Skúli Craftbar
Stjórnarmeðlimur
Arinbjörn Þórarinsson, – Greifinn
Stjórnarmeðlimur
Emil Helgi Lárusson, – Serrano
Stjórnarmeðlimur
Arngrímur Fannar Haraldsson, – Funky Bhangra
Stjórnarmeðlimur
Brynjar Guðjónsson, – Flatey Pizza
