Góð mæting og breytingar á stjórn
Það var vel mætt og góðar almennar umræður um samtökin okkar, stefnu og helstu áherslumál. Skúli Sigfússon og Birgir Örn Birgisson létu af störfum sem stjórnarmenn og þakka samtökin þeim óeigingjarnt starf í þágu samtakanna í síðustu ár.
Þau María Hjaltadóttir frá Finnsson, Arngrímur Haraldsson frá Funky Bhangra og Brynjar Guðjónsson frá Flatey voru kjörin inn í stjórn.
Fyrsti stjórnarfundur nýrrar stjórnar verður eftir páska og þá verður kjörinn nýr stjórnarformaður. Áfram í stjórn sitja Arinbjörn Þórarinsson frá Greifanum, Emil Helgi Lárusson frá Serrano og Björn Árnason verður varamaður í stjórn.




