Hefur starfað um árabil við sölu- og markaðsmál
María starfaði meðal annars hjá Álafossi, áður en hún kom að rekstri Argentínu steikhúss ásamt eiginmanni sínum, Óskari Finnssyni matreiðslumeistara. Þar öðlaðist hún víðtæka reynslu af rekstri, þjónustu, mannauðsmálum og daglegri stjórnun í einum þekktasta veitingastað landsins á sínum tíma.
Á síðari árum hefur María gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu Finnsson í Kringlunni, þar sem hún hefur haft yfirumsjón með bókhaldi, markaðsmálum og rekstrarstjórnun ásamt fjölskyldu sinni. Reksturinn hefur vakið athygli fyrir sterka þjónustumenningu og skýra sýn á íslenskan veitingarekstur.
Einar Bárðarson var ráðinn framkvæmdastjóri samtakanna fyrir tæpu ári síðan og segir hann komu Maríu mikið fagnaðarefni fyrir SVEIT.
„Það er mikill fengur fyrir okkur að fá Maríu bæði í stjórnina og í stöðu formanns. Hún býr yfir mikilli þekkingu bæði hérna heima og erlendis og ég hlakka mikið til samstarfsins við hana,“ segir Einar.
María segir að staða íslensks veitingageira hafi sjaldan verið jafn þung og nú. Á síðustu árum hafa rekstrarskilyrði versnað verulega með miklum hækkunum á aðföngum, húsaleigu, launakostnaði og öðrum föstum rekstrarliðum. Samhliða því hafi breytingar í ferðaþjónustu og hægari efnahagsumsvif haft bein áhrif á starfsemi fjölmargra fyrirtækja í greininni.Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar SVEIT var farið yfir stöðu greinarinnar og þær áskoranir sem blasa við fyrirtækjum á veitingamarkaði. Þar var meðal annars rætt um mikilvægi þess að efla sameiginlega hagsmunagæslu greinarinnar og tryggja að rödd veitingamanna heyrist skýrt í samfélagsumræðunni.
María segir mikilvægt að samtök eins og SVEIT haldi áfram að vera sterk og sjálfstæð rödd fyrir íslenska veitingamenn.
„Við þurfum að standa saman sem grein. Veitingastaðir eru mikilvægur hluti af íslensku atvinnulífi, menningu og ferðaþjónustu. Það er mikilvægt að rödd okkar heyrist skýrt þegar kemur að rekstrarumhverfi, starfsfólki og framtíð greinarinnar,“ segir María.
Fleiri breytingar hjá SVEIT
Á sama fundi var Arinbjörn Þórarinsson, einn eigenda og framkvæmdastjóri Greifans, kjörinn gjaldkeri stjórnar SVEIT.
Ný stjórn hyggst á næstu vikum funda með stjórnvöldum, Samtökum atvinnulífsins og öðrum lykilaðilum til að kynna stöðu veitingageirans og þær áskoranir sem fyrirtæki í greininni standa frammi fyrir. Aðrir stjórnarmenn í stjórn Sveit eru Emil Helgi Lárusson eigandi Serrano, Brynjar Guðjónsson einn eigenda Flatey og Arngrímur Fannar Haraldsson einn eigenda Funky Bhangra og varamaður í stjórn er Björn Árnasson eigandi Skúli Craftbar. Ný stjórn hyggst á næstu vikum funda með stjórnvöldum, Samtökum atvinnulífsins og öðrum lykilaðilum til að kynna stöðu veitingageirans og þær áskoranir sem fyrirtæki í greininni standa frammi fyrir.
Samstaða og framtíðarsýn voru leiðarstef fundarins og ljóst að ný stjórn SVEIT ætlar sér að halda áfram öflugri hagsmunabaráttu fyrir íslenskan veitingamarkað.
Á myndinni er María með sínu fólki á Finnsson, Óskari Finnssyni eiginamanni og börnunum þeirra Klöru og Finni.




