Fyrirtæki upplifa sig oft ein þegar mest reynir á
Í greininni var meðal annars fjallað um sífellt erfiðara rekstrarumhverfi, hækkandi kostnað á öllum sviðum og þá staðreynd að fyrirtæki í greininni upplifa sig oft ein þegar mest reynir á.
Viðbrögðin við greininni hafa verið umtalsverð. Það sem vekur hvað mesta ánægju er ekki aðeins sá fjöldi skilaboða sem bárust heldur einnig að í kjölfarið hafa ný fyrirtæki gengið til liðs við SVEIT og önnur ákveðið að endurnýja þátttöku sína í samtökunum. Það er skýr vísbending um að skilaboðin hafi ratað til þeirra sem starfa í greininni og að sífellt fleiri sjái mikilvægi þess að standa saman.
Fram undan eru áfram krefjandi tímar. Vaxtahækkanir, hækkandi aðfangakostnaður og óvissa á vinnumarkaði eru áskoranir sem hverfa ekki á næstunni. Við slíkar aðstæður skiptir miklu máli að atvinnugreinin hafi öflug samtök sem geta talað hennar máli og staðið vörð um hagsmuni fyrirtækjanna.
SVEIT óskar eftir fundi með atvinnuvegaráðherra
SVEIT hefur á undanförnum vikum óskað eftir fundi með atvinnuvegaráðherra til að ræða stöðu fyrirtækja á veitingamarkaði og mögulegar aðgerðir sem gætu styrkt rekstrarskilyrði greinarinnar.
Um miðjan maí sendu samtökin ráðherra erindi þar sem óskað var eftir samtali um meðal annars tryggingagjald, áfengisgjald og önnur atriði sem hafa áhrif á samkeppnishæfni og afkomu fyrirtækja. Þar sem enn hefur ekki borist svar við erindinu hefur fundarbeiðnin nú verið ítrekuð.
SVEIT mun áfram vinna að því að koma sjónarmiðum félagsfólks á framfæri og fylgja þeim málum eftir sem mestu skipta fyrir rekstrarumhverfi veitingageirans.
Aukin þátttaka fyrirtækja í samtökunum á síðustu vikum er jafnframt mikilvæg áminning um að greinin er sterkust þegar hún talar einum rómi. Þótt verkefnin séu mörg og áskoranirnar umtalsverðar gefur aukin samstaða tilefni til bjartsýni um framhaldið.




