„Að það sé gripið til þessa aðgerða á þessum fáu sólardögum sem við fáum hérna heima er gjörsamlega galið,“ segir Aðalgeir Ásvaldsson, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT), um aðgerðir lögreglu á veitingastöðum sem hafa ekki leyfi fyrir útiveitingum.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynnti í gær að hún hefði undanfarna daga haft eftirlit með veitingastöðum og kannað hvort þeir hafi leyfi til útiveitinga.
Aðrar aðgerðir ættu að vera í fyrirrúmi
„Mér þykir þessar aðgerðir gjörsamlega ótækar, að vera að henda fólki út af einhverjum bekkjum og þar til gerðum svæðum, þegar það var svo sem engin hætta af einu né neinu,“ segir Aðalgeir.
„Ég myndi nú frekar halda það að aðgerðir eins og jafnvel sektir eða heimsóknir einhvers eftirlits ættu að vera í forgrunni heldur en þessar ofstækisaðgerðir lögreglunnar, þetta er alveg ömurlegt.“
Aðalgeir segir að lögreglan hafi ekki haft samband við SVEIT og að samtökin hafi lagt sig í lima við það að vera í góðu samstarfi við alla eftirlitsaðila, þar með talið lögregluna.
„Það getur verið að lögreglan hafi haft samband við viðeigandi aðila og þeir hafi ekki brugðist við og þá verða menn að grípa til einhverra aðgerða, en þessar aðgerðir eru alveg fráleitar,“ segir hann.
„Eins og að sparka í liggjandi mann“
Hann segir kreppu í greininni og að fyrirtæki séu að verða gjaldþrota nánast vikulega.
„Við finnum svolítið fyrir því enn og aftur að það virðist vera algjört skotleyfi á veitingamönnum. Hvort sem það eru stuðningslán, launahækkanir, kjarasamningar eða eftirlit heilbrigðiseftirlitsins og þetta bætir gráu ofan á svart,“ segir hann og heldur áfram:
„Þetta er eins og að sparka í liggjandi mann, auðvitað viljum við eftirlit, við viljum vinna þetta saman, en þetta er sko engin leið til þess. Þetta er bara leið til þess að ýta okkur ennþá meira í einhverja mótstöðu við eitthvað svona yfirvald.“




