1–2 minutes

Helstu verkefni og umræður

Undanfarnar vikur hafa verið viðburðaríkar í starfi SVEITAR. Hér er stutt yfirlit yfir helstu verkefni og umræðu sem samtökin hafa tekið þátt í.

SVEIT - Haustfundur

Félagavöxtur og styrking samtakanna

Á síðustu vikum hafa fimm ný félög bæst í samtökin og tvö félög gengið aftur til liðs við okkur. Það er skýr sókn í félaginu og mikilvægt að minna á að styrkur samtakanna byggir fyrst og fremst á félagsmönnum sjálfum. Baráttan fyrir bættum rekstrarskilyrðum greinarinnar er fjármögnuð af okkur sjálfum og því skiptir hver nýr félagi máli.

Fundir með rekstraraðilum

Á síðustu vikum hafa verið haldnir fundir með rekstraraðilum á Suðurlandi og á Reykjanesi. Slík samtöl eru mikilvæg fyrir samtökin þar sem þau gefa skýra mynd af stöðu rekstrar og helstu áskorunum í greininni. Markmiðið er að halda áfram að hitta veitingafólk á þeirra heimavelli og byggja málflutning samtakanna á reynslu og sjónarmiðum úr rekstrinum sjálfum.

Vöruafhendingar í miðborg Reykjavíkur

Undanfarið hefur verið mikil umræða um framkvæmd reglna um vöruafhendingar í miðborg Reykjavíkur. Samtökin hafa tekið þátt í þeirri umræðu í fjölmiðlum og bent á að vöruafhendingar séu ekki undantekning frá rekstri heldur forsenda hans.

Í kjölfar umræðunnar hafði skrifstofa borgarstjóra samband og hefur verið boðað til samtals um málið. Markmiðið er að ná sameiginlegri niðurstöðu um skýrari og raunhæfa umgjörð um stutt stopp vegna vöruafhendinga í miðborginni.

Kostnaðarþrýstingur í greininni

Í greinum sem birtust í fjölmiðlum hefur verið fjallað um þann mikla kostnaðarþrýsting sem veitingageirinn stendur frammi fyrir. Þegar laun, húsnæði, orka, birgðir og skattar hækka samtímis safnast þrýstingurinn að lokum hjá rekstraraðilanum sem stendur andspænis gestinum.

Langstærstur hluti veitingafólks eru einstaklingar og fjölskyldur sem hafa lagt allt sitt undir í rekstrinum. Þegar svigrúm til að taka á sig uppsafnaðar kostnaðarhækkanir er uppurið standa rekstraraðilar frammi fyrir erfiðum ákvörðunum – að hækka verð eða hætta rekstri.

Félagsfundur í Kópavogi

Góður félagsfundur var haldinn í BRASA í Turninum í Kópavogi þar sem farið var yfir stöðu mála í greininni. Þar var meðal annars kynnt uppfært mælaborð fyrir félagið og farið yfir nýja samningskosti sem tengjast starfsemi veitingastaða.

Við þökkum öllum sem tóku þátt í fundinum fyrir góða mætingu og gagnlegar umræður.