1–2 minutes

Verkalýðs­hreyfingin sé stærsta ógnin við starfsöryggi á veitinga­stöðum

Grein af visir.is Aðalgeir Ásvaldsson framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingarmarkaði, SVEIT, segir stærstu ógnina við starfsöryggi starfsmanna veitingastaða á Íslandi verkalýðshreyfinguna og kjarasamningana sem gerðir voru fyrir hönd stéttarinnar. „Fátt er alvarlegra en þessi aðför þeirra að þúsundum starfa í grein sem er afar viðkvæm, svo viðkvæm í raun að flestir veitingastaðir þurfa að loka…

Aðalgeir Ásvaldsson - SVEIT

Grein af visir.is

Aðalgeir Ásvaldsson framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingarmarkaði, SVEIT, segir stærstu ógnina við starfsöryggi starfsmanna veitingastaða á Íslandi verkalýðshreyfinguna og kjarasamningana sem gerðir voru fyrir hönd stéttarinnar.

„Fátt er alvarlegra en þessi aðför þeirra að þúsundum starfa í grein sem er afar viðkvæm, svo viðkvæm í raun að flestir veitingastaðir þurfa að loka í nokkra mánuði á ári. En svona staðreyndir henta kannski ekki á leslistum forsvarsmanna Framsýnar? Sannleikurinn getur nefnilega verið skrambi óþægilegur stundum,“ segir Aðalgeir í tilkynningu frá samtökunum.

Tilefni tilkynningarinnar er grein sem formaður Framsýnar skrifaði á vef Vísis í gær. Þar gagnrýndi hann stéttarfélagið Virðingu og SVEIT fyrir að koma að stofnun þess. Hann sagði eina tilgang félagsins að brjóta niður lágmarksréttindi verkafólks á íslenskum vinnumarkaði.